Er einhver heima???? úff langt síðan ég hef sett eitthvað hingað
inn. Ástæðan hefur að stærstu leiti verið leti. Bloggsíðan sem ég
hef verið með síðustu árin ber þess einnig merki, enda annsi lítið
um færslur þar. Hef verið á fullu í dagskóla og kvöldskóla og já
haft slatta að gera. Hef tekið þá ákvörðun að prófa danska kúrinn.
Held að hann geti barasta hentað mér vel

jahh svona ef ég ven
mig á að vikta ofan í mig. Annars keypti ég mér svakalega fína
safapressu í dag

ég og krakkarnir ætlum hér eftir að taka með
okkur ferskan heimapressaðan ávaxtasafa í skólann, í stað þess að
kaupa okkur safa. Vinkona mín sagði mér t.d. að það væri mjög gott
að blanda saman tveimur appelsínum, hálfri sítrónu og tveimur
gulrótum. Svo er bara að prófa sig áfram með ávextina

En já ætla
að vera duglegri að henda einhverju hér inn af og til.. efast þó
stórlega um að nokkur kíki hingað inn.. kveðja